
Fjallafrúin
Fjallafrúin er ýmislegt að bralla í saumaherberginu.
Á þessari síðu er hægt að fá VæruKær sem er kúrukoddi og Hnoðra ungbarnahreiður. Einnig er bókin um Tungufells búninginn til sölu hér.
Unnar púðar eru útsaumaðir púðar sem ung kona með Downs-heilkenni saumar og rennur allur ágóði þeirrar sölu til Downs-félagsins.
Einnig saumar Fjallafrúin brúðarslör, hringapúða og Spunapúðana fallegu.
Tungufellsfaldbúningurinn
5.000 kr.Bókin um Tungufellsfaldbúninginn fjallar í máli og myndum um gerð 19. aldar faldbúnings. Frá hugmynd að fullgerðum faldbúningi. Verkefnið var unnið á árunum 2013-2017.
Faldbúningurinn hefur skemmtilega tengingu við Tungufellskirkju í Hrunamannahreppi.
Bókin er 38 blaðsíður prentuð á fallegan ljósmyndapappír.
Bókin er bæði á íslensku og ensku.
Spunapúði – Bláklukka
9.900 kr.Bláklukka er með blágrænum útsaumi á hvítu hör efni. Bak og umgjörð er úr blágrænu flaueli, einnig hægt að fá með svörtu baki.
VæruKær – Gemlingur
23.500 kr.VæruKær – Gemlingur er 110 cm langur og mjög gott að kúra hjá. Þægilegt að hafa annaðhvort í fangi og á milli fótanna.
Eitt koddaver fylgir frítt með VæruKær.
VæruKær – Lamb
19.900 kr.VæruKær – Lamb er 80 cm langur og mjög gott að kúra hjá. Þægilegt að hafa annaðhvort í fangi og á milli fótanna.
Eitt koddaver fylgir frítt með VæruKær.
Vínpokar – jólapoki
1.890 kr.Jólapoki fyrir eina vínflösku. Pokann er hægt að endurnýta endalaust.
Stærð: 16×45 cm
Ef þú kaupir 4 jólapoka færðu lítinn jólapoka (20×30 cm) í kaupbæti.
Muslin – bleyjugas
2.600 kr.Tveggja laga muslin efni eða bleyjugas.
Vandað efni úr 100% bómull.
Efnið er selt í metratali.
Gjafakort rafrænt
Hægt er að kaupa gjafakort fyrir Handverkstorg.is, um tvenns konar gjafakort er að ræða, annarsvegar gjafakort í tölvupósti eða venjulegt gjafakort í umslagi.
Kortin er aðeins hægt að nota í vefversluninni Handverkstorg.is
VæruKær – Skjáta
27.200 kr.VæruKær – Skjáta er 140 cm langur og mjög gott að kúra hjá. Þægilegt að hafa í fangi og á milli fótanna.
Eitt koddaver fylgir frítt með VæruKær.
Jólagjafapoki – 30×40 cm
1.890 kr.Jólagjafapoki í stærðinni 30×40 cm er miðlungsstór. Pokinn er fóðraður með hvítu fóðri.
Nokkrar gerðir af efni í boði.
Miðlungsstór: 30×40 cm
Ef þú kaupir 4 jólapoka færðu lítinn jólapoka (20×30 cm) í kaupbæti.
VæruKær – Forystu skjáta
32.200 kr.VæruKær – Forystu skjáta er 140 cm langur og mjög gott að kúra hjá. Þægilegt að hafa í fangi og á milli fótanna.
Forystu línan er vatteruð með bambus vatti og er því aðeins stinnari og þykkari fyrir vikið.
Eitt koddaver fylgir frítt með VæruKær.
Spunapúði – Blóðberg
9.900 kr.Blóðberg er með blóðrauðum útsaumi á hvítu hör efni. Umgjörð er úr blóðrauðu flaueli og bak er með svörtu flaueli.
Spunapúði – Holtasóley
9.900 kr.Holtasóley er með Emerald grænum útsaumi á hvítu hör efni. Hægt er að velja bak og umgjörð úr Emerald grænu flaueli eða umgjörð úr Emerald grænu flaueli og bak úr svörtu flaueli.


