Fjallafrúin er ýmislegt að bralla í saumaherberginu.
Á þessari síðu er hægt að fá VæruKær sem er kúrukoddi og Hnoðra ungbarnahreiður. Einnig er bókin um Tungufells búninginn til sölu hér.
Unnar púðar eru útsaumaðir púðar sem ung kona með Downs-heilkenni saumar og rennur allur ágóði þeirrar sölu til Downs-félagsins.
Einnig saumar Fjallafrúin brúðarslör, hringapúða og Spunapúðana fallegu.

Hringapúðar par hjartalaga

Hjartalaga hringapúða par.  Hægt er að velja milli blúndkants eða perlukants (sjá myndir).

Einnig er hægt að sérmerkja þessa púða.  Sjá dæmi um sérmerkingar og liti á myndum.

Brúðarslör tvöfalt m/bugðum og kristöllum

Tvöfalt brúðarslör með kristöllum er tignarlegt slör með grönnum pensilkanti og fallegum Swarovski kristöllum í kverk.

Slör með kristöllum er sérpöntun, vinsamlegast sendið tölvupóst á brudarslor@brudarslor.is til að panta.

Gjafakort rafrænt

Hægt er að kaupa gjafakort fyrir Handverkstorg.is, um tvenns konar gjafakort er að ræða, annarsvegar gjafakort í tölvupósti eða venjulegt gjafakort í umslagi.

Kortin er aðeins hægt að nota í vefversluninni Handverkstorg.is

Gjafakort í umslagi

Hægt er að kaupa gjafakort fyrir Handverkstorg.is, um tvenns konar gjafakort er að ræða, annarsvegar gjafakort í tölvupósti eða venjulegt gjafakort í umslagi.

Kortin er aðeins hægt að nota í vefversluninni Handverkstorg.is

Brúðarslör – sérpöntun

Hægt er að sauma slörin þeirri sídd sem þú óskar. 

Síð slör og slör sem eru í annarri sídd en staðlaðar stærðir eru sérpöntun, vinsamlegast sendið tölvupóst á brudarslor@brudarslor.is til að panta.

Efni fyrir handverkið

Fjölbreytt úrval af efni fyrir handverkið.

Skoðið úrvalið

Efnið er selt í metratali.

Ullarefni

5.600 kr.

Vandað og þykkt ullarefni, fallegt í kápur og aðrar yfirhafnir.

Efnið er soðin ull (Boiled wool)

Þyngd: 380 g/m2

Íslenskt tartan ullarefni

Sérhannað ullarefni í íslensku fánalitunum eða Icelandic Tartan.

Afskaplega vandað og fallegt ullartartan sem er sérofið eins þunnt og hægt er til að það henti betur t.d. í þjóðbúningasvuntur.

Efnið er sérpantað og sér ofið fyrir Fjallafrúna.

Takmarkað magn eða aðeins 50 metrar eru í boði (nema eftirspurn verði þeim mun meiri).

Allskonar fyrir saumaskapinn

Allskonar smávara fyrir saumaskapinn fæst á heimasíðu Fjallafrúarinnar.

Sokkagarn

760 kr.

Mayflower Universe sokkagarnið er afskaplega fallegt og mjúkt ullargarn blandað með nylon til að fá styrkleika.

Þjóðlegur löber

18.000 kr.

Þjóðlegur löber hentar á hvaða veisluborð sem er.

Löberinn er saumaður úr vönduðu ullarefni og fóðraður. Kögur er í báðum endum.

Mál: lengd 2m breidd 30 cm

Hnoðra slefsmekkir

750 kr.

Hnoðra slefsmekkir eru saumaðir úr fallegu jersey efni og undirlagið er úr afskaplega mjúku Bambus handklæðaefni. Hann er þykkur, mjúkur og rakadrægur.