Margnota andlitsskífur, þvottastykki og lítil snyrtibudda. Gjafapakkning – ljós grátt

Seljandi: jonajonaknitter

4.900 kr.

Dásamleg gjöf. 8 margnota andlitsskífur, 1 þvottastykki handgert úr 100% bómull ásamt lítilli snyrtibuddu.

Frábæra teymið hjá Lovalceland eru svo yndisleg og gefa prufur af þremur af þeim dásamlegum vörum sem þau eru með.  Þessar prufur fylgja með snyrtibuddu pakkningunni á meðan birgðir af prufunum frá þeim endast.

Gjöf með gjafapakkningu:  Lovalceland gefur prufu af Retinol Augnkremi, glas af Rósa Serum og prufu af C vítamín rakakremi.

Þessar vörur eru alveg dásamlega góðar, dekra við húðina.  Mínar uppáhalds vörur.
Litur: Ljós grátt.

Snyrtibudda: Svört.

Staða vöru: Aðeins 1 eftir.
Lýsing

Dásamleg gjöf. Frábært að hafa með í helgarferðina eða í ræktina/sundið.

Innihald pakkans: 8 stk andlitsskífur, 1 stk þvottastykki og lítil snyrtibudda.  Þvottaleiðbeiningar.

 

Andlitsskífurnar og þvottastykkið er handunnið úr 100% bómull frá Króatíu.  Stærð á andlitsskífunum er  u.þ.b 6 cm og er sú sama og á minni einnota bómullarskífunum.  Þær passa því í box undir skífurnar ef slíkt er notað.

Stærð á þvottastykki er u.þ.b 16×16 cm

Snyrtibuddan er hólfuð að innan og því upplagt að setja notaða andlitsskífu þar í svo hún bleyti ekki hreinu skífurnar,

Eftir notkun þá setur þú skífurnar í þvottavélina á allt að 60° (ath. dökkir sterkir litir geta litað annann þvott), teygir til og varan er síðan tilbúin til áframhaldandi notkunar.

Vona að þér líki við vöruna mína jafn mikið og mér líkar hún.

Umsagnir (0)
Scroll To Top
  • Valmynd
  • Vöruflokkar
Loka
Heim
0 Óskalisti

Karfan þín 0

Loka

Vörukarfan er tóm!

Versla meira

Margnota andlitsskífur, þvottastykki og lítil snyrtibudda. Gjafapakkning – ljós grátt
4.900 kr.

Tilboðshelgi 24.-27. nóvember!