
Verslun
Alice from Rats On Cocaine with Sound!
30.000 kr.Tilraunarottan Alice úr YouTube teiknimyndaþáttunum „Rats on Cocaine“ frá 2007.
Cage from Rats On Cocaine with sound!
30.000 kr.Cage úr teiknimyndaþáttunum „Rats On Cocaine“ á YouTube frá 2007.
Þessi tilraunarotta gerir maka sínum lífið leitt í hverjum þætti!
Íslenskt tartan ullarefni
Sérhannað ullarefni í íslensku fánalitunum eða Icelandic Tartan.
Afskaplega vandað og fallegt ullartartan sem er sérofið eins þunnt og hægt er til að það henti betur t.d. í þjóðbúningasvuntur.
Efnið er sérpantað og sér ofið fyrir Fjallafrúna.
Takmarkað magn eða aðeins 50 metrar eru í boði (nema eftirspurn verði þeim mun meiri).
Allskonar fyrir saumaskapinn
Allskonar smávara fyrir saumaskapinn fæst á heimasíðu Fjallafrúarinnar.
Sokkagarn
760 kr.Mayflower Universe sokkagarnið er afskaplega fallegt og mjúkt ullargarn blandað með nylon til að fá styrkleika.
Þjóðlegur löber
18.000 kr.Þjóðlegur löber hentar á hvaða veisluborð sem er.
Löberinn er saumaður úr vönduðu ullarefni og fóðraður. Kögur er í báðum endum.
Mál: lengd 2m breidd 30 cm
Bókamerki
600 kr.Eldlilja Design er með mikið úrval af fallegum bókamerkjum sem gott er að hafa við hendi við lesturinn.
Bókamerkin eru 5 x 15 cm að stærð og fást í mörgum mismunandi litum og útfærslum.
Hnoðra slefsmekkir
750 kr.Hnoðra slefsmekkir eru saumaðir úr fallegu jersey efni og undirlagið er úr afskaplega mjúku Bambus handklæðaefni. Hann er þykkur, mjúkur og rakadrægur.
Gjafakort
750 kr.Falleg gjafakort frá Eldlilja Design sem henta vel við öll tilefni.
Gjafakortin fást í fimm mismunandi útfærslum og er hvert og eitt þeirra með einstaka hönnun og litasamsetningu. Að innan eru kortin auð svo hægt sé að skrifa kveðju til viðtakanda. Gjafakortin eru prentuð á 170gr pappír og fylgir með umslag í samsvarandi lit.
Stærð gjafakorts: 15,5 x 10,5cm
Gjafaumslög
890 kr.Falleg gjafaumslög sem henta vel fyrir peningagjafir við ýmiss tilefni svo sem afmæli, fermingar, brúðkaup og fleira.
Gjafaumslögin fást í mörgum mismunandi litum og eru með fallega útskornu mynstri á bakhliðinni. Meðfylgjandi er einblöðungur úr 300 gr þykkum pappír sem er ætlaður sem kort.








